Ókei.. ég ætla bara að
fá smá útrás með þessa tíbísku umræðu.... AÐ VERA
GOTH!
...hvað er málið með að
allir gotar séu "ég fylgi sko ekki tískunni.. ég þoli ekki hnakka..
blablabla" ...hverju í andskotanum eru þau að fylgja ef það er ekki
tíska!
Dæmi: Var á
grandatónleikum um daginn og eitt band byrjar að spila. Það voru
ósköp venjulegir drengir þar á ferð, enginn með sítt hár, allir í
venjulegum gallabuxum og bara já.. venjulegir. Ég var nú ekkert
sérstaklega að fíla tónlistina sem þeir voru að spila svo ég fer
fram bara eitthvað að kjafta.. eftir smá stund kemur svo svona
"mall-goth" fram og segir "Ómægod! Þeir eru allir í Dísel
gallabuxum, það er geðveikt ekki kúl!" ...og þá sagði ég "Nú, eiga
þeir frekar að vera í Mótor fötum einsog þú?" ....vá.. hún var svo
sjálf í merkjavöru dauðans!
Það er svo geðveikt
eitthvað í tísku að vera goth núna... ég hata það.. hvert sem maður
lítur er einhver svona wannabe goth. Þetta er bara því miður allt
fullt af gervigotum! Þau fara í mótor "ÓMÆGOD! Ég elska Hello
kitty! ...ég verð að kaupa þetta pils!" ...svo eru allir í
alveg eins fötum. Ég gæti ekki keypt mér föt í Mótor. Ekki bara
útaf því að mér finnst fötin ekki flott, en ef ég actually fílaði
fötin væru 70% líkur á að þegar ég myndi labba útúr búðinni myndi
ég mæta annarri stelpu í nákvæmlega eins fötum og ég var að
kaupa... Nei takk! 
Ókei.. I get it.. goth er
í tísku.. ekkert hægt að gera við því.. Þetta er bara að koma svo
slæmu orðspori á alvöru gota! Fólk talar alltaf um að gotar séu
bara einhverjar gelgjur á mótþróaskeiðinu að reyna að pirra pabba
og mömmu. Hversu oft hef ég heyrt fólk segja "Þú verður hætt þessu
fyrir tvítugt" ...hvernig í fokkinu vita þau það? Þessar mall-goth
gelgjur sem hanga fyrir utan Mótor verða hættar þessu fyrir
tvítugt, óójá... ég trúi því nú alveg
En kommon... hvað um
fólkið sem er bara virkilega að finna sig í þessu... fylgir
lífstílnum.. ekki bara fatastílnum og "oh, ég er svo
þunglynd"..
Sem minnir mig á eitt


Ég var að vinna í
bakaríinu og það var ný stelpa.. hún var ekkert búin að tala við
mig allan daginn en svo vorum við saman í lokun... Við fórum svona
smá að tala saman.. ég eitthvað "hvernig tónlist fílaru?" og hún
(MJÖG alvarleg) "rokk, þungarokk og dauðarokk... ég er rokkari
sko.. sjáðu" *sýnir mér gaddabelti* ...og ég (við það að springa úr
hlátri) "ókeei.. hvaða hljómsveitir ertu mest að hlusta á?" hún:
"ég þarf ekkert að vita hvað þær heita!!" og ég: "þú hlítur nú að
geta nefnt eina
" og hún: "bara diskana hans pabba" ...vá.. þarna
fór ég að hlæja.. Ókei, that\'s not all! Strax eftir þetta.. við
vorum ekkert búnar að tala meira saman... kemur hún "Ohh, ég var að
tala við vinkonu mína í símann í gær og hún var svo geðveikt happy!
Ég meika ekki svoleiðis.. ég fékk geðveikt þunglyndiskasst!
Sjáðu.." *sýnir mér hendina á sér þar sem hún var búin að skera
sig* ...vá.. hvað mig langaði að hlæja... ég sagði samt bara: "oh,
hvað þú ert kúl" ....svo labbaði ég inní eldhús og leyfði mér að
hlæja smá 
Þetta er svo tíííbískt
fólk sem kemur óorði á rokkara, metalhausa,
gota..whatever...
Ókei, ég viðurkenni alveg
að ég þekki slatta af svona liði sem dópar, drekkur og reykir....
eeeeeeen.. ég þekki svo miklu fleiri sem eru ekki þannig sem gera
það sama og eru jafnvel verri! Fólk tekur bara meira eftir okkur
því við klæðum okkur meira áberandi :/
Heh, ég veit ekki alveg
hvert ég er að fara með þetta
Smá svefngalsapirringur í mér

En ókei.. ég hef svo oft
verið spurð "ertu mansonisti" og ég: "neeei?" "ertu goth?"
"uuuh..?" ...Hvað á maður að segja?
"Já, ég er goth!" ..pff..
sko fyrst fannst mér geðveikt óþægilegt að segjast vera goth... mér
fannst ég ekkert vera það.. ég er bara litla Berllind... en svo fór
ég að pæla.. það er miklu meira asnalegt að vera goth en geta ekki
viðurkennt það... svona Goþþ inn dinæel..
...svo núna er ég
hvorki goth né ekki goth
Ég er bara Berglind
Right?

Jæja, ég hlýt að geta
kvartað yfir einhverju fleiru 
Já!! Afhverju finnst fólki
einsog það megi bara ausa svívirðungunum yfir mann því maður "er
svona.."
...ekki er ég að labba uppað ljóshærðum stelpum og
spyrja afhverju þær lita hárið sitt ekki svart! Ekki er ég að segja
þeim að að hætta að ganga í svona ljótum bleikum bolum!
Ein stelpa í skólanum
mínum er bara farin að venja sig á það þegar hún sér mig að koma
með eitthvað "Oh.. hvað ertu nú búin að gera?!" ...bara því mér er
öruglega alveg sama?
Algengar (og kannski ekki
svo algengar) línur:
Ertu goth?
Ertu
mansonisti?
Ert þú nú alveg gengin í
djöfulinn?
Hefuru drepið
dýr?
Afhverju ertu..
svona..?
Guð getur bjargað
þér
(gömul kona sem labbaði
uppað mér uppúr þurru) Þú ert með svo falleg augu! Þú þarft ekki að
fela þau! ...hélt greinilega að mér fyndist ég það ógeðsleg að ég
þyrfti að fela mig með málningu og svörtum fötum 
...og svo það sem er
reyndar bara sætt
þegar litir krakkar eru að tjá sig.. hef
fengið allt þetta líka:
"MAMMA MAMMA SJÁÐU
STELPUNA ÞARNA!!!!"
*mjög hátt* "Vááá!! sjáðu
hárið hennar!!"
...og eitt sem var sætast
í heiiimi... ég var að afgreiða konu sem var með svona 4 ára stelpu
með sér sem byrjaði að tala við mig... hún sagði fyrst hátt og
skýrt "Mikið ofboðslega ert þú fallega máluð!" og ég segi
náttúrulega takk
og hún heldur áfram, rosalega fullorðinsleg
"...alveg rosalega fín stelpa.. virkilega fín.. hvar fékstu þetta
hálsmen?" ..hehe.. æj vá ég var að bráðna... pínulítil stelpa að
tala einsog fullorðin kona 
Æjá, ég var að kvarta..
:/
Sko, heldur fólk honestly
að maður sé með þetta meiköpp 24/7 ....we do sleep you know! ...ég
kom einu sinni ómáluð í skólann, einfaldlega vegnaþess að ég svaf
yfir mig og mátti ekki missa af tímanum útaf mætingu:
Svo kem ég
á borðið í skólanum og það fyrsta sem ég heyri er "ÓMÆGOD...
ÓMÆGOD... ERTAÐ DJÓGA... ÓÓÓMÆGOOOOOOOOOOOD BERGLIND ER
ÓMÁLUÐ!!!!!!!!!!!!!!!!" ...svo byrjar eitthvað svaka seremóní sem
hættir ekki fyrren eftir 10 mínútur.... "Ohh, þú ert miklu fallegri
svona.." "vertu oftar svona" "ef ég væri þú myndi ég bara vera
alltaf svona" ....djöfull var ég móðguð! Kommon, þetta er einsog ef
venjuleg stelpa kæmi í skólann... hún hefði sofið yfir sig og komið
einsog drusla í skólann.. allir færu svo að segja hvað hún væri
miklu fínni þá en venjulega... auðvitað er það móðg!! Geðveikt
verið að dissa hvernig maður er venjulega... ég heyrði ekki "þú ert
miklu fallegri svona" ..ég heyrði "þú ert miklu ljótari máluð"

Ég hefði alveg þolað þetta
ef ég væri að tala um aðeins þessar 10 mínútur þegar ég kom í
skólann... onei.. hvert sem ég fór þá fór fólk að tala um þetta...
meiraðsegja konurnar í mötuneytinu voru eitthvað "voðalega ert þú
ferskt í dag" og hin "já váá hvað þú ert fín" ...
Svo þurftu
auðvitað ALLIR kennararnir mínir að minnast á þetta... úff...
remind me to never to that again... : /
Kannski komið nóg í bili
